Staðgreiðslulán
Til að taka Staðgreiðslu-Lán þarf viðkomandi að vera handhafi kreditkorts, en þessi lán eru ekki veitt handhöfum Veltikorts eða annarra fyrirframgreiddra kreditkorta.
Ný og betri leið til að eignast verðmætari hluti
MasterCard Staðgreiðslulán, til allt að 36 mánaða, gera korthöfum kleift að eignast verðmætari hluti eins og húsgögn, hljómtæki, tölvur, hljóðfæri og heimilistæki á einfaldan og þægilegan hátt.
Með MasterCard Staðgreiðsluláni verða kaupin örugg og þægileg. Afborganir eru færðar mánaðarlega á MasterCard kreditkortið, einfaldara getur það ekki verið.
Staðgreiðslulán?
Við vekjum athygli á því að með Staðgreiðslulánum höfum við sniðið helstu agnúana af Raðgreiðslum, og gert bæði seljanda og korthafa léttara um vik að eiga viðskipti með verðmætari hluti. Seljandi fær greitt strax og korthafinn fær lánað fyrir vörunni, á mun betri kjörum en áður.
Minni kostnaður
Af MasterCard Staðgreiðsluláni þarf ekki að greiða stimpilgjald, eða ábyrgðar- og þjónustugjald, sem þýðir að kostnaður við lántökuna hefur minnkað til muna.
Hagstæðari kjör
Vextir af MasterCard Staðgreiðslulánum eru breytilegir og ákvarðaðir af Kreditkorti hf. Þeir eru lægri en verið hafa á Raðgreiðslum. [sjá vexti]
Minni fyrirhöfn
Það tekur töluvert skemmri tíma að gera MasterCard Staðgreiðslulán og aðeins þarf undirskrift á tvö eintök í stað átta áður...
Hámarksupphæð
Vert er að minna á að fyrsta árið er hámarksupphæð samanlagðra Raðgreiðslna tvöföld innlend heimild korthafa. Eftir það hækkar þessi heimild í þrefalda innlenda heimild hjá skilvísum korthöfum.
Dæmi um hámarksupphæð
Ef korthafi er með 50.000 kr. innlenda úttektarheimild getur hann að hámarki gert Raðgreiðslusamninga að upphæð 100.000 kr., nema hann hafi verið með kortið í meira en ár og staðið vel í skilum, þá hækkar hámarksupphæðin í 150.000 kr.
Spyrjið um MasterCard Staðgreiðslulán þegar þið kaupið verðmætari hluti.
Ekki með veltukort eða Plúskort
Athugið að ekki er hægt að gera MasterCard staðgreiðslulán á veltukort eða fyrirframgreidd kort (Plúskort).
Hámarksupphæð
Vert er að minna á að fyrsta árið er hámarksupphæð samanlagðra Raðgreiðslna tvöföld innlend heimild korthafa. Eftir það hækkar þessi heimild í þrefalda innlenda heimild hjá skilvísum korthöfum.
Dæmi um hámarksupphæð
Ef korthafi er með 50.000 kr. innlenda úttektarheimild getur hann að hámarki gert Raðgreiðslusamninga að upphæð 100.000 kr., nema hann hafi verið með kortið í meira en ár og borgað skilvíslega, þá 150.000 kr.
Útfærslur
Tvö form eru notuð fyrir MasterCard Raðgreiðslur;
- Kaupsamningur með eignaréttarfyrirvara
- Skuldabréf
Vextir geta verið breytilegir eða fastir. Fyrirtækjaþjónusta MasterCard lætur verslunum og þjónustuaðilum í té þessi form, en ákvarðanir um lántökukostnað og útreikningur á samningum er á ábyrgð verslana og þjónustuaðila sjálfra.
|